Opið

Það er búið að opna yfir til Skálavíkur. Við nöfnurnar, ég og amma ásamt dóttur minni henni Margréti skelltum okkur úteftir seinnipartinn í dag. Ég get sagt ykkur það að þegar við gengum upp eyrina að Lambeyri þá sungum við textan hans Gunnars afa "Er ég fyrst heyri vorfugla kvaka" og það átti svo sannarlega við í þessu ekta vorveðri sem var í dag. Við kíktum inn á Lambeyri og auðvitað á Minnibakka líka ... allt leit vel út. Það þarf aðeins að þrífa og gera allt klárt fyrir sumarið. Það verður stórferð til Skálavíkur fljótlega og í þeirri ferð verður sko skemmt sér. Ég segi frá þeirri ferð betur þegar nær dregur Grin En ég hlakka MIKIÐ til Halo.

Vegurinn úteftir er töluvert blautur ... ég vona að hann fái að jafna sig almennilega áður en mikil umferð brestur á úteftir. Það voru þó nokkuð af bílum sem skutust til Skálavíkur á meðan við amma vorum þar m.a. voru fjárbændur að sleppa fé í Víkinni. Elsku fólk, vorið ER komið InLove

Minnibakki kom nokkuð vel undan vetri þó það þurfi aðeins að sletta smá steypu á nokkrum stöðum úti og svo þarf aðeins að mála á efrihæðinni í íbúðarhúsinu. Þannig það er margt spennandi sem er rétt handan við hornið. Þegar þið eigið leið hjá í Skálavíkinni og sjáið fyrir utan Minnibakka gráan Subaru eða rauða toyotu ... þá er ég þar og ykkur er velkomið að kíkja við. 

Meira seinna, Guðbjörg Stefanía.  


Smá rölt.

Ég fór smá rölt í dag. Ég náði að draga Helgu Guðrúnu fóstursystur mína og skiptinemasystur mína hana Rebekku með mér. Við gengum upp að vörðu frá þeim stað þar sem björgunarsveitin var að draga fólk á snjósleðum og með snjóbíl. Við fórum frá vörðunni og röltum rösklega niður að á þar sem við snérum við og röltum upp aftur. Þetta allt saman tók okkur um tæpa tvo klukkutíma.

GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (3)

GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (4)

  GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (5)

 

 

 

 

 

 

 

  GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (8)

 

 

 

 

 

 

 

 Ég ætla ekkert að ganga þetta í bráð aftur. Færið í dag var ekkert svo skemmtilegt þó svo að ég hefði alveg verið til í að fara alla leið að Minnibakka þá voru samferðamennirnir ekki alveg á því Joyful 

Ég ætla að rölta aftur úteftir til Skálavíkur þegar sólin hefur náð að bræða snjóinn enn frekar og vegurinn að mestu leiti kominn undan snjónum. Þar sem sumarið er nú hafið þá hef ég sett mér það markmið að hjóla allavega 3 sinnum (kannski oftar, allavega 3 sinnum) út eftir til Skálavíkur. Ég ætla að reyna að vera þar meira og minna í sumar þannig það er eins gott að hjóla þetta nokkrum sinnum W00t 

Þanngað til næst .... 

 

 

 

 

 

 

 

 


Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar lesendur nær og fjær.

Björgunarsveitin stendur fyrir útivistardegi uppá Skálavíkurheiði í dag. Mér skilst að fjörið byrji um kl. 13:30 ... skemmtilegt.

Ég er að spá í að nota veðrið og það að fullt af fólki verði uppá heiði og bara rölta yfir í Víkina fögru, Skálavík. Ég legg þetta undir nefnd og síðan er ekkert annað sem heitir en að skella sér yfir.   


Perlan Vestfirðir

Ef einhverjir eru svo heppnir að hafa Morgunblaðið síðan í gær, 29. mars, hjá sér þá getið þið séð viðtal við mig um framkvæmdir og drauma í sambandi við Minnibakka. Reyndar er viðtalið í blaði sem fylgdi Mogganum í gær, Perlan Vestfirðir og mæli ég hiklaust með því að þið nálgist þetta blað, það er gaman að lesa það. Ekki einungis vegna þess að það er smá klausa þarna um mig og "mitt" W00t

Ég var hjá ömmu minni Guggu áðan og stoppaði þar í mína rúmlegu góðu tvo tíma. Það sem ég sé alltaf eftir er að vera ekki með upptökutæki á mér eða eitthvað þegar ég er stundum að tala við hana, þá sérstaklega þegar tal okkar færist yfir í Skálavík, Minnibakka, framkvæmdir og drauma þeirra afa og ömmu. En ég reyni að muna allar þær upplýsingar og svipbrigði ömmu þegar hún er að segja frá. Er það ekki bara besta leiðin? 

Ég er alltaf að æfa mig meira og meira að þeysast um á vélsleða og kemur það sér sérstaklega vel að kærastinn eigi einn slíkan Kissing Allavega þá vorum við nokkur uppá Skálavíkuheiði að leika okkur að renna niður brekkurnar og já ... æfa okkur á vélsleðunum að ég ákvað að fara úteftir. Ég meina þegar maður er búin að telja 6 sleða fara þanngað á einum klukkutíma og tvö fjórhjól þá getur maður ekki bara setið á sér og horft á! Tounge Skálavíkin var fallegri en nokkurntíman áður, kannski segi ég þetta vegna þess að það var langt síðan ég hef lagt leið mína þanngað. Sólin skein þokkalega mikið inní Víkina, það var ekki of mikill snjór, enginn bústaður alveg á kafi, áin hagaði sér almennilega var ekki að sperra sig mikið uppá Eyrina hjá ömmu síðan var ekki alveg logn (kemur á óvart) heldur smá gola ... það gerist ekki betra! Sálarlega þá hreinsaðist ég alveg og keyrði vélsleðan sem ný manneskja upp heiðina aftur á leið heim. Auðvitað tók ég nokkrar myndir og reyndi þannig að "fanga" þetta augnablik mitt en ég efast um að það hafi tekist en ég er búin að setja myndirnar inní myndaalbúmið Skálavík þannig þið getið kíkt á þær, en þær eru nú ekki margar. 

 

 
Það er nú ekki mikið að frétta af "planaða" göngutúrnum mínum, en hann var allavega ekki farinn núna um páskana. Ég hafði hugsað mér að fara þessa helgina sem er að líða en þá gerðist ég það fræg að leggjast í flensu! Angry En ég er alveg staðráðin í því að þessi ferð verður farin. Miðað við hvernig færið úteftir var um páskana þá hefði auðvitað verið alveg súper að skella sér yfir ... en... Það er spurning um að stefna á aðra helgina í apríl, þ.e. að segja laugardaginn 12. apríl. En ég ætla nú ekkert að slá því föstu núna! Það gæti breyst, það fer eftir veðri og vindum, færi og einu og öðru "léttvægu" Wink
En þið sem hafið áhuga á að koma með getið tekið 12. apríl frá, en með fyrirvara við um breytingar, haha! Samþykkt? Halo Síðan hugsa ég að það eru ekki allir íbúar í Víkinni að lesa þetta þannig það verður á einhvern hátt að láta þetta fréttast. Mér fannst samt gaman af því að hann Obbi vinur minn og nágranni stoppaði mig útá götu um páksana og sagðist ætla að koma með. Þetta segir mér aðeins eitt: Þessi hugmynd mín er að fara á milli manna Joyful Ég þakka ykkur, lesendum mínum, fyrir það.
 
Annars bið ég bara að heilsa ykkur öllum og munið eftir
Perlur Vestfjarða 

 


Fallegt veður.

Það var nú flotta veðrið hér í dag og kuldann vantaði ekki.

Það voru frískir menn sem létu ekki kuldann aftra sér heldur fóru á vélsleðum útí Skálavík til þess að fá smá fiðring eins og ég kalla það Tounge

Ég er búin að vera að fá sömu fluguna í hausinn nokkrum sinnum á dag síðustu daga þegar ég horfi heiman frá mér úr stofuglugganum og uppá Skálavíkurheiði. Hver er til í að ganga með mér yfir í Skálavík einhvern fallegan vetrar dag? Það má líka koma á gönguskíðum, ég man að Óskar fór oft langt uppá heiði og stundum lang leiðina niður í Skálavík á gönguskíðunum þannig það er ekkert ógerlegt. Síðan ef fólki lýst ekki á að ganga niður þá er bara hægt að "sleppa" sér og renna sér á rassinum niður heiði Grin

Ég hef það að markmiði að gera það fyrir eða um páskana. Endilega látið heyra í ykkur, ég hugsa að þetta gæti orðið skemmtilegt sem og ævintýralegt W00t Eftir góðan göngutúr yrði síðan komið sér fyrir í sal Minnibakka sem með tímanum verður eins og höll og drukkið heitt kakó og kaffi lagað á gamla mátann og ef til vill gætt sér á einhverju heimabökuðu?! 

Ef það verður flott og fallegt veður eins og var til dæmis í dag, vá ó vá ... þá væru myndirnar sem maður gæti náð ekkert smá flottar hugsa ég. Hverjum langar ekki að geta sagt: "Já, ég tók mig einu sinni til og labbaði til Skálavíkur". 

Ég veit ekki hvort ég fái einhver viðbrögð, en hver er til í að koma með


Það eru nú ekki alltaf jólin!

Ég fékk bréf í dag. Það innihélt neitun vegna umsóknar sem ég sendi fyrir jól að mig minnir. Jæja, það þarf að lifa og standa með því.

Ég fékk gleðilegan tölvupóst, að mér fannst, um daginn. Það á víst að gera ferðablað um Vestfirði og var spurt hvort ég kæmi í viðtal við blaðið og myndi ræða um Skálavík og þær hugmyndir, framkvæmdir og drauma sem ég á um Minnibakka. Þetta segir okkur eða mér allavega eitt ... fólk hefur áhuga á því sem ég er að gera og vill hjálpa mér, ég lít á þetta sem hjálp við að koma mér og mínum hugmyndum á framfæri. 

Það væri nú draumi líkast ef einhver myndi nú senda mér tölvupóst og segjast ætla að gefa mér einhverja smá peninga upphæð. Maður má nú láta sig dreyma Joyful

Það hefur verið snjósleðafært, auðvitað nægur er nú snjórinn, til Skálavíkur og það er alltaf lyginni líkast að renna niður heiðina og sjá glitta í þau hús sem tilheyra manni. Je minn einasti eini, maður fær bara fiðring við tilhugsunina InLove

Er ekki um að gera að leyfa ykkur, örfáu, sem lesið þessa síðu að fylgjast aðeins með gangi mála?

Með kveðju, Guðbjörg.  


Frétt sem gleður.

Ég rakst á frétt á vef Bæjarins Besta þess efnis að nú gefst ferðaþjónustu aðillum kostur á því að sækja um styrki til eflingar ferðaþjónustu. Gleðilegar og skemmtilegar fréttir sem eykur spennu hjá mér.

Ég mun sækja um styrk úr þessum sjóðir móvægisaðgerða til ferðaþjónustu.

Þið getið lesið fréttina hér.


Fréttir

Arnar Páll og Ari Haukssynir komu hingað Vestur á laugardaginn og reyndu einhvað fyrir sér að komast til Skálavíkur, það gekk ekki. Þeir ætluðu ekki að eiga þá hættu að vera fastir einhverstaðar uppá heiði. Einnig veit ég að Gunnar Már, minn maður, reyndi að fara úteftir en lagði ekki í það Halo.

Það er of mikill snjór til þess að fara veginn og of lítill snjór til þess að fara niður með veginum, ánni og hjá mýrunum. En það fer vonandi að verða fljótlega jeppafært, svo ég tali nú ekki um vélsleðafært, hvar er allur snjórinn? FootinMouth

Ég var að skila inn einni stykjarumsókn. Núna er bara að bíða og sjá Tounge. Ég er farin að sjá allt draslið og dótið sem hent verður útúr Minni bakka von bráðar. Þá mun heyrast "kveikjum eld, kveikjum eld ..." Því flest draslið verður notað á brennunni sem haldin er árlega í Skálavík. Joyful Ég er strax farin að hlakka til sumarsins og veturinn rétt að byrja! En það er nú hægt að vinna í einu og öðru þó svo að það sé vetur! Það hefur alveg sýnt sig að skálvíkingar láta ekki veturinn stoppa sig í einu né neinu. Grin


Óskar Hálfdánsson

 

 

Laugardaginn 24. nóvember lést Óskar Hálfdánsson.

Óskar var einn af okkur skálvíkingunum þar sem hann átti bæinn Breiðaból ásamt konu sinni Karitas (Kæju).
 

Ég á margar minningar þar sem Óskar kemur við sögu og þá sérstaklega minningar frá Skálavík. Ég veit ekki hvar ég á að byrja og ég veit ekki hvar ég á að enda. En eitt veit ég, Skálavík verður ekki söm án Óskars en ég vil trúa því að hann verði þarna með okkur alveg eins og hann afi Gunnar.

Ég sendi fjölskyldu Óskars, vinum og kunningjum samúðarkveðjur.  

Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir 


Afsökun

Ég ætla að biðjast afsökunar á þessu hangsi í mér. Það fór allur þróttur úr manni þegar ég missti af öllum þeim styrkjum sem ég hefði getað sótt um. Einnig hitti ég eitthvað af fólki, sem betur fer fáa, sem gáfu einhver neikvæðar athugasemdir á þessar framkvæmdir ... þetta neikvæða vill oft draga úr manni. En isss... ég er hætt að hlusta á það og núna skal sko tekið á því að afla fjár fyrir Minnibakka og ekkert kjaftæði.

ég er búin að setja inn nokkrar myndir frá sumrinu í yndislegu Skálavík.  


Næsta síða »

Um bloggið

Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir

Höfundur

Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir

Ég heiti Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir. Ég er víkari sem bý í Bolungarvík. Eitt af mínu helstu áhugamálum er Skálavík. 

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • DSC01700
  • Hross við Minnibakka
  • GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (10)
  • GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (8)
  • GöngutúráSkaálvíkuheiði 24.apríl (6)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 10351

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband